Vetrarstarf Karlakórs Selfoss að hefjast

Vetrarstarf Karlakórs Selfoss er að hefjast núna þegar haustar að, eftir frekar lítilfjörlegt sumar. Aðalfundur kórsins var haldinn 19. ágúst sl. og þar var kjörin stjórn en hana skipa: Unnar Steinn Guðmundsson formaður, Þórir Haraldsson gjaldkeri, Einar Hermundsson, Björgvin R. Snorrason, Jóhann Pétur Jóhannsson ritari og Jóhannes Hr. Símonarson.

Sumarið var ekkert til að hrópa húrra fyrir og til þess að bæta okkur það upp, mun kórinn leggja enn meiri metnað í vetrarstarfið, og þá sérstaklega vegna þess að 2. mars nk. eru 60 ár síðan Karlakór Selfoss var stofnaður.

Norrænn samhljómur fyrsta verkefni þessa starfsárs eru tónleikar í Skálholtskirkju sunnudaginn 13. október, þar sem við syngjum með einum virtasta karlakór Svíþjóðar, Karlakór Stokkhólms. Eru unnendur karlakórasöngs hvattir til að mæta í Skálholt þennan sunnudag.

Strax að afloknum tónleikunum með Karlakór Stokkhólms verður haldið kynningarkvöld, mánudaginn 14. október kl. 19:30, þar verður starfsemi komandi vetrar kynnt og nýir söngmenn boðnir velkomnir, og síðan hefjast reglubundnar æfingar vetrarins mánudagskvöldið 21. okt. kl. 19:30 í félagsheimili kórsins að Eyravegi 57.

60 ára afmæli Komandi starfsár er það 60. í sögu kórsins, stofnaður 1965.

Mörg spennandi og skemmtileg verkefni eru framundan og söngskrá vetrarins (bestu lögin í 60 ár) verður kynnt á fyrstu æfingunni, en æft verður einu sinni í viku, á mánudagskvöldum kl. 19:30-22:00.

Fastir punktar í vetrarstarfinu eru jólatónleikar sem haldnir verða í Selfosskirkju 17. desember og Skálholtskirkju 9. desember. Þá eru vortónleikar kórsins áformaðir í Selfosskirkju samkvæmt venju á sumardaginn fyrsta, 24. apríl 2025 og 29. Apríl. Svo verður sungið í Fella- og Hólakirkju fimmtudaginn 1. maí og lokatónleikar verða svo í Skálholtskirkju laugardaginn 3. maí 2025.

Ýmsar hugmyndir eru uppi um sérstaka viðburði vegna afmælisársins, sem verða kynntir síðar á starfsárinu

Um og yfir 60 söngmenn hafa starfað með kórnum undanfarin ár og stjórnandi Karlakórs Selfoss er eins og undanfarin tíu ár, Skarphéðinn Þór Hjartarson og píanóleikari er Jón Bjarnason, sem starfað hefur með kórnum í 15 ár.

Nýir félagar eru sérstaklega boðnir velkomnir og eldri söngmenn eru hvattir til að mæta. V

Share