Mig langar heim
Jólakveðja frá Karlakór
Vetrarstarf Karlakórs Selfoss
Karlakór Selfoss er að hefja vetrarstarf sitt um þessar mundir, en kórfélagar eru nýkomnir heim úr lærdómsríkri söng- og skemmtiferð til Írlands þar sem heimsóttur var karlakór sem starfar í Cork. Fóru um 100 hressir Sunnlendingar í þessa ferð.
Vetrarstarfið
Nú taka hefðbundnar æfingar við, til undirbúnings því söngstarfi sem framundan er og má þar nefna tónleika ásamt Karlakórnum Þröstum úr Hafnarfirði og fara þeir fram í Selfosskirkju í nóvember. Þá verða tvennir hefð-bundnir jólatónleikar uppúr miðjum desember. Eftir áramótin verður aðaláherslan lögð á undirbúning vortónleikanna sem hefjast skv. venju á sumardaginn fyrsta, auk annarra tilfallandi verkefna og má þar t.d. nefna vorferð til Vestmannaeyja.
Nýliðakvöld
Nýir félagar eru ávallt velkomnir til liðs við Karlakór Selfoss og verður sérstakt nýliðakvöld haldið fimmtudaginn 11. október kl. 20:00 í salarkynnum kórsins við Eyraveg. Þar verður starfsemi kórsins kynnt, auk þess sem nýir söngmenn verða staðsettir, hver eftir sínu raddsviði (bassar og tenórar). Eru áhugasamir söngmenn á Selfossi og nágrenni hvattir til að mæta.
Æfingar
Æfingar Karlakórs Selfoss fara fram á mánudagskvöldum í Karlakórshúsinu við Eyraveg 53. Hefjast þær kl. 20:00 og standa yfir til kl. 22:30, með einu kaffihlé. Fyrsta formlega æfingin er mánudaginn 15. október og þá verður lagaval vetrarins kynnt. Stjórnandi kórsins og undirleikari í vetur verður Jón Bjarnason, en hann hefur starfað með Karlakór Selfoss frá 2011. Formaður Karlakórs Selfoss er Ómar Baldursson, og gefur fúslega allar upplýsingar um kórinn í síma 840 5572.
Karlakór Selfoss á leið til Cork
Vortónleikar 2018
Karlakór Selfoss vortónleikar 2018.
Senn heilsar okkur sumar og Karlakór Selfoss heldur að vanda fyrstu vortónleika sína á sumardaginn fyrsta, 19. apríl kl. 20:30 í Selfosskirkju.
Kórfélagar hófu æfingar í endaðan september og fyrstu stóru verkefnin voru aðventu- og jólatónleikar í desember sl. þar sem sungin voru jólalög á fernum tónleikum.
Eftir áramót hafa kórfélagar æft ötullega og er verkefnalistinn fyrir vortónleikana fjölbreyttur. Má þar nefna lög sem tengjast íslenskum kvikmyndum og svo óperutónlist, auk heðbundinna karlakórslaga.
Það er gæfa Karlakórs Selfoss að stjórnandi kórsins, Skarphéðin Þór Hjartarson er afbragðs útsetjari og hefur fært mörg falleg lög í prýðilegar útsetningar fyrir kórinn. Ef nokkur lög úr kvikmyndum eru tilgreind má nefna: Sönn ást úr kvikmyndinni Óðal feðranna, Þig dreymir kannske engil úr Djöflaeyjunni, UFO úr kvikmynd Stuðmanna Með allt á hreinu, og fleiri íslensk lög og að auki eru á söngskránni nokkur lög úr erlendum kvikmyndum.
Karlakór Selfoss hefur viðhaldi þeirri hefð frá stofnun kórsin að syngja fyrstu vortónleikana á sumardaginn fyrsta, sem í ár ber uppá 19. apríl. Næstu tónleikar verða þriðjudaginn 24. apríl í Selfosskirkju kl. 20:30 og svo í Fella- og Hólakirkju fimmtudaginn 26. apríl kl. 20:00. Lokatónleikar þessa starfsárs verða á Flúðum í Félagsheimili Hrunamanna laugardagskvöldið 28. apríl kl. 20:30.
Sem fyrr segir er Skarphéðin Þór Hjartarson stjórnandi kórsins og Jón Bjarnason píanóleikari, og þess má geta hér í lokin að á næsta starfsári tekur Jón við stjórn Karlakórs Selfoss í ársleyfi Skarphéðins Þórs.
Jólastund
Vetrarstarf Karlakórs Selfoss að hefjast
Vetrarstarf Karlakórs Selfoss er að hefjast þessa dagana, fyrst æfing vetrarins verður mánudagskvöldið 25. september kl. 20:00 í félagsheimili kórsins að Eyravegi 67. Komandi starfsár er það 53. í sögu kórsins, sem var stofnaður 1965. Mörg spennandi og skemmtileg verkefni eru framundan og söngskrá vetrarins (lagaval) verður væntanlega kynnt á fyrstu æfingunni, en æft verður einu sinni í viku, á mánudagskvöldum.
Stjórnandi Karlakórs Selfoss er Skarphéðinn Þór og píanóleikari Jón Bjarnason.
Nýjir félagar eru velkomnir og eldri söngmenn eru hvattir til að mæta.
Aðalfundur 2017
Aðalfundur Karlakórs Selfoss var haldinn mánudagskvöldið 28. ágúst 2016 og auk venjulegra aðalfundarstarfa var kosin ný stjórn
Ný stjórn kórsins er þannig skipuð í dag.
Formaður: Ómar Baldursson
Gjaldkeri : Þórir Haraldsson
Varaformaður: Björgvin Magnússon
Ritari: Jóhann Pétur Jóhannsson
Meðstjórnendur:
Björgvin Snorrason og Unnar Steinn Guðmundsson.
Æfingar kórsins munu síðan byrja mánudagskvöldið 25. september og eru allir sem áhuga hafa á söng hvattir til að mæta á þessa fyrstu æfingu þar sem alltaf er pláss fyrir söngmenn.
Vor 2017
Nú fer að líða að vori og sumardeginum fyrsta og þýðir það eitt að þá eru fyrstu tónleikar Karlakórs Selfoss í Selfosskirkju sem verða svo endurteknir þann 25.apríl í Selfosskirkju , 27.apríl í Fella og Hólakirkju og síðan á Flúðum þann 29.apríl.
Á tónleikum 25.apríl, 27.apríl, og 29.apríl verður með kórnum Jón Þorsteinn Reynisson harmonikkuleikari og eins og áður er stjórnandi Skarphéðinn Þór Hjartarsson og píanóleikari er Jón Bjarnason.
Kórinn mun einnig koma fram með Karlakór Hreppamanna á 20 ára afmælistónleikum þeirra í Selfosskirkju 3.apríl.